!!! KOMA SVO !!!

Livin It Up

02.01.2007 20:33:58 / dyrid-

...

DEAD???


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 14:15:00 / dyrid-

Ferðalag

Já ég er að fara í smá ferðalag á morgun..er sumsé að fljúga heim klukkan 7:45 í fyrramálið en það er mæting klukkan 7:15!! og hvernig í ósköpunum á ég að vakna??
En annars verður fínt að koma heim, en það er bara einn galli á þessu! að ég þarf að fara heim með 2 flugvélum, sú fyrri en fín þar leggur maður sig bara og hlustar á tónlist. En svo fer ég með annari frá Akureyri til Vopnafjarðar og svo Þórshafnar og hún er ekki flugvél frekar hvað annað!! þetta er bara málmhaugur með smá rými fyrir nokkra aðila sem kæra sig um að fara með þessum málmhaugi eitthvert!. Ég var að fljúga með henni einu sinni um áramót fyrir 2 árum og ég hélt án gríns að lífi mínu væri lokið! hún hentist til og frá um loftið og ég var komin á þá skoðun að kveikja bara á bölvuðum símanum og senda öllum sms að þetta væri það seinasta sem þið mynduð heyra frá mér því að ég væri að fara að deyja!. En við sluppum lifandi til Akureyrar...hef sjaldan verið jafn fegin að komast á land!! Ég sumsé kæri mig ekki nokkurn skapaðan hlut um að fara í þessu óféti! en þar sem þau gömlu halda að ég sé e-d ofurmenni í dulargervi þá verð ég víst að hlýða og fara með þessu! er að spá í að fara til læknis og frá róandi því að festa svefn inní þessu óféti er ekki hægt þar sem hávaðin inní þessu myndi mælast um 30 db. Árans vesen!

(flugévélin er þarna einhversstaðar)

Ég á svo margt eftir að gera en ég kem því bara engan vegin í verk...ég lagði mig eftir íslenskuprófið og fór svo eftir það í sturtu þar sem ég skaut rótum! er ennþá með handklæðið á hausnum og nenni engan vegin út. Árans vesen!

Ég þarf að fara til tannlæknis á eftir. Árans vesen

Þessi dagur er bara eitt árans vesen!! og hvað þá morgundagurinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 13:46:43 / dýrið

OOOOOOOOOJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJ

!!!!Anskotans Vesen!!!!

:whut:8|:whut:8|:whut:8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 12:15:21 / dyrid-

Félag íslenskra lélega sögunemenda, fundur í kvöld kl. 8 tjúss í boði

Ólöf mín, alltaf ertu jafn dugleg með þessa síðu;) ég ætla núna að leggja mitt af mörkunum og blogga.

Ég er búin að komast að því að ég er ekki góð í sögu!! eða sko þeirru sögu sem ég hef engan áhuga á! til dæmis eins og einhver himpigimp þarna í Palestínu fyrir x mörgum árum...mig kemur það bara ekkert við!jújú vissulega er gaman að læra um eins og hvar var fyrsta prentsmiðjan á Íslandi, Da Vinci og þessa félaga og um svarta dauða. Ég lærði langt fram eftir nóttu við það að læra...vaknaði klukkan 7 til þess að halda áfram að læra, dottaði, mætti of seint í prófið(en Jón kallinn var ekkert reiður) og svo þegar ég horfði á þetta var eins og ég hefði aldrei á ævi minni séð þessar tölur eða neitt áður....var algerlega tóm!!  ÁRANS VESEN

Ég er mjög seinheppin manneskja! það er búið að sjást undanfarna daga hvað ég er það.En ég held að ég toppi ekki Ólöfu haha! því að seinheppnari manneskja finnst ekki þótt víða væri leitað.:haha:

Skólinn er sumsé búinn hjá mér í dag, nema að ég á eftir að fara í munnlegt enskupróf klukkan 1. Úff hvað þetta verður nice;)

Svo klukkan hálf þrjú er ég að fara uppí Ármúla til námsráðgjafa:lol: er líklega búin að fá inn á sjúkraliðabraut:haha: þar sem áhugi minn liggur, en samt vill ég ekki yfirgefa Flensborgina..þar sem ég kynntist bókstaflega öllum! þar á meðal henni Ólöfu, sé sko ekki eftir því að hafa farið í Flensborg:) veit ekki hvort ég lifi af eina önn án þess að hafa ykkur öll!!

En víkjum nú frá röflinu í mér um skóla og tölum um e-d skemmtilegt;)

Afmælið hjá Ólöfu var feikiskemmtilegt, tjah allavega skemmti ég mér konunglega. Ólöf reytti af sér brandaranna linnulaust og ég get svo svarið það að ég hélt að ég ætlaði aldrei efttir að hlægja þegar hún sagði mér einn.

Skutla, Moli, Rotti hvað sem þessi lufsa heitir fékk líka bjór...eins og flest öllum þarna inni fannst hann honum mjög góður...

.....ég er að glósa um það sama og Ólöf var búin að gera:$

Sem þýðir að það er ekkert merkilegt búið að ske hjá mér uppá síðkastið

Látum þetta gott heyra krakkar mínir..

allir voru í grænum búningum í afmælinu, sjáðu handverkið! Ólöf gerði þetta sjálf!!

KOMA SVO!!





» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 20:33:29 / dýrið

Ég á að vera að læra, þess vegna er eg að blogga 8)

Ég ætla ekki að hafa þetta langt, bara svona að sýna smá líf á þessari síðu.

Þessi helgi er búin að vera fín, vinna og ammæli :D

Þegar ég mætti í vinnuna á laugardaginn, hélt ég að ég væri að deyja ég var svo þreytt:!: Hvernig er örugglega það sem sumum dettur í hug þegar þið lesið þetta, því jú ég sef meiri hlutann af deginum, en ég er búin að finna úr því, krónísk svefnsýki kallast þetta, lísir sér þannig að ég get sofið endalaust og við hvaða aðstæður sem er. Fer ekki nánar út í það umræðuefni.

Um kvöldið fékk ég nokkra gesti sem snæddu með mér osta og hvítvín. Voða kózý stemming, rólegt og þægilegt. Þegar Einar kom magnaðist stemmingin, sumir farnir að finna fyrir hvítvíninu.... eða eitthverju öðru :$ já þá vorum við þrjár eftir, ég, Hulda og Djúsbolti aka. Sólveig ;) Svo komu vinir hans Einars, og ein stelpa með þeim, stemmingin lifnaði við ( ekki það að það hafi ekki verið stemmari hjá okkur 4, KOMA SVO ) já svo kom líka eitthver vinur hennar Huldu, gullfallegur sá kauði :!:

Þegar ég vaknaði í morgun var heilsan ekki upp á marga fiska, en samt mun skárri en hjá sumum, ég fékk mer bara kókópöffs og var hress eins og fress, fyrir utan nokkuð sem ég get ekki skilið og það er bólgan á litla putta, og marblettur á mer, hvernig 8| en ég fékk mer bara kókópöffs og varð hress eins og fress :haha:

Moli litli fékk að vera með og honum fannst mjög gaman


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 16:38:57 / dýrið

skepna

HÆ Hey ég ÆTLAÐI bara að segja öllum að hún ólöf litla á afmæli í dag hún er orðin átján ára gömul klöppum fyrir henni til hamingju sæta mín.. :>

kv einar

Anjĕ牢

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 15:15:53 / dyrid-

,,,

ÉG HATA KÁRAHNJÚKAVIRKJUN!!!

Áður fyrr var hún barasta ekkert fyrir mér, en ef við ætlum yfir höfuð að hafa þessa virkjun á Íslandi þá er hún best geymd þarna uppfrá! það er nú ekki eins og við íslendingar höfum verið að fara þarna uppeftir til þess að skoða Hálslón og e-d meira. En núna er ég í náttúrufræði 113 og þarf að skrifa ritgerð um þessa ljótu stíflu og eins og sjá má á pirringnum er ég algerlega stopp! ég nenni þessu ekki. Jeminn hvað það verður gott að komast í jólafrí!!
En ég býst ekki við því að ég fari heim fyrr en 20 des:$ Gróa er að fara að útskrifast og svo er Gunni að koma heim frá Danmörku þennann sama dag. En ætli að ég verði þá ekki bara heima um áramótin líka fyrst ég fer heim svona seint. En verst er að áramótin þarna heima eru ekkert til að hrópa húrra fyrir:| það eru nokkrar raggettur sem fara uppí loftið og svo fara allir á áramótaballið haugafullir og svona 50% af þeim sem mæta þangað eiga ekki eftir að muna eftir ballinu daginn eftir. Ég var til dæmis í þessum hóp í fyrra og ætla mér sko ekki að verða það aftur:)
En jæja ég ætla að klára þessa árans ritgerð!

Sólveig


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 15:36:01 / dýrið

!!!!!!!

það er búið að skemma heimilið mitt!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 19:27:15 / dýrið

Með þér er lífið yndislegt

Sigmund Freud sagði: Án ástar, ekkert líf - án átaka, enginn þroski.

Ég er alveg sammála honum þarna :D að hafa e-rn til þess að elska er nauðsinlegt, og því fleiri sem þú elskar, því betra verður lífið:D ég á fullt af fólki sem ég elska. Enda gæti mer ekki liðið betur. Um daginn, þá heyrði ég á lag sem hún Ragnheiður Gröndal syngur, mer fannst það ekki uppá marga fiska, enda skildi ég það ekki þá. Heyrði það aftur núna um daginn, og ég skil það. Skil hvað hún er að syngja um, þekki þessa tilfinningu, tilfinninguna að hafa e-rn sem þú villt alltaf vera með, e-rn sem þú treystir 100 % og hreinlega getur ekki verið án. Þessi tilfinning er yndisleg, tilfinning sem ég get ekki hugsað mer að vera án.

Horfum til eigin tilfinninga, til eigin hugsunar og leyfum ástinni að brjótast fram þaðan.

Ég kveð að sinni

Ólöf á ástfangnum nótum 8)

Ég Elska Þig Minn :**


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 23:22:45 / dýrið

M I K I L V Æ G T

Hver veit hvað lagið heitir sem er í VW polo auglýsingunni ?!?! held að það sé Dolly Parton sem singur það :D

 

 

Helgin hjá mer var sú ágætasta enda var ég ein heima ;) Á föstudaginn fór ég á hina skelfilega hræðilega ömurlegu mynd Jet li’s fearless, hún er glötuð :!: Held samt að Einar og Þórhallur hafi skemmt sér ágætlega en við Kristjana vorum ekki að fýla hana, enda eintóm bardaga stráka mynd :P Laugardagurinn fór í verslunarleiðangur með Gróu minni sem er alveg að springa, ég líka,ég er bara að springa úr spenningi :haha: Um kvöldið fór ég á Amercan Style með Einari og vinum hans Arnari og Sverri. Ég borðaði þangað til ég sprakk :P hehe. Svo kíktu Kristjana og Þórhallur til okkar og seinna kom Óli frændi hennar Kristjönu, við fórum í e-rn fáránlegan leik og var ég góð í því að gleyma mer, t.d við það að tala enskuna :$ svo fórum við í e-ð partý í pínulítilli holu e-r staðar en stoppuðum ekki lengi. Dagurinn í dag fór í það að taka til :D

  

 

Ég er með eina pælingu sem ég er búin að vera að rökræða í dálítinn tíma við hann Einar minn :D Hvernig í ósköpunum eru franskar kartöflur búnar til ? Ég vil meina að kartöflurnar séu hakkaðar niður í mauk og allskonar efni sett í það, síðan er maukið sett í e-a vél sem gerir þessar fallegu löngu ræmur, ég er ekki endilega að meina að maukið sé sett í e-ð mót, heldur meira kannski eins og hakkavél eller som :P ræddi þetta við marga og eru svona flestir SAMMÁLA mér, en sumir virðast vera SAMMÁLA Einari, hans kenning er sú að kartöflurnar séu sprautaðar með sterum og skornar niður í ræmur, þá spurði ég hann hvernig hann fái riflaðar franskar, og þá á það að vera rifflaður hnífur sem sker. En þá spyr ég bara hvernig í anskotanum færðu broskalla franskar Einar ?!?!?!?!

 

 

                                

 

 

Jæja ég nenni ekki að hafa þetta lengra, ætli ég fari ekki bara að læra hihi ;)

 

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 00:42:24 / dýrið

þetta hef ég að segja ykkur

Mig langar að blogga pínu fyrst að það er kominn mánudagur :D

En helgin hjá mer var fín bara. Byrjaði með allsvaðalegri ferð í Smáralindina þar sem mér og Einari var boðið út að borða og í bíó af elskulegum föður hans, fórum á pizza hut og svo á Mýrina, sem stóðst vel undir væntingum mínum :haha:

Laugardagurinn minn fór í vinnuna og vinnufélaga. Ég sem sagt kíkti í keilu með Heru og Daða um kvöldið. Mér leist ekki of vel á það að vera að fara í keilu þar sem hæfni mín í þeirri grein er ekki upp á marga fiska. Þegar inn var komið fengum við skó og braut, ég var síðust í röðinni. Daði byrjaði og felldi hann e-ar nokkrar keilur, næst gerði Hera og er manneskjan bara ónáttúrulega léleg því að hún hitti enga..... nokkrum sinnum í röð, jæja nú var komið að mér, ég valdi fallega bleika kúlu og tuðaði um það hvað ég væri ógeðslega léleg í keilu og ég ætti ekki að vera þarna og e-ð meira shit, stillti mer vel upp og kastaði....... kúlan rúllaði og rúllaði og rúllaði, hélt sko að þetta myndi taka eilífð, svo spennandi var þetta, en nei haldiði ekki að mín hafi fengið FELLU Í FYRSTA :!: Vá hvað ég var þokkalega montin. Ég var í fyrsta sætinu í smá tíma, þangað til að það gerðist, keilu meistarinn ég er að fara að kasta, stilli mer vel upp, held á bleiku kúlunni minni sveifla hendinni og PÚFF, kúlan hreinlega lak úr höndunum á mer, og rúllaði eins hægt og hún gat. Þar með voru dagar mínir sem keilumeistari taldir, því ég hitti ekki staka keilu eftir þetta hræðilega atvik. Svo fór ég pínu til Sólveigar og svo bara til Einars að sofa, skilst á honum að eg hafi verið að kafna þarna við hliðina á honum úr kvefi :S En dagurinn í dag fór í það að taka til og læra, gaman =) Einar ákvað líka að við ættum að taka til í tölvunni minni, það var ein alsherjar tiltekt, því vírusar og annað rusl leindi sér þarna eitthverstaðar í tuga tali.

 

Það er búið að vera mikill óróleiki á heimili mínu undanfarna daga. Sérstaklega núna um helgina. Fjölskyldufólk hefur sótt heimili mitt mikið, þá á ég við öll hersingin, mamma, pabbi og 2 – 3 börn. Já nú á ég vissulega við lögheimili mitt eða KFC. Ég hreinlega bara skil ekki fjölskylduferðir á skyndibitastaði:!: Mér hreinlega finnst ekkert hallærislegra en það, (nema að fara í Ikea núna og kaupa jóladót) hvað er svona spennandi við það að fara, kaupa sér sveittan fitugan kjúkling í fötu, leifa krökkunum að vera í “kubbalandi” á meðan beðið er eftir matnum, þegar maturinn fyrir stórfjölskylduna er kominn er engin leið að fá börnin til að setjast niður því jú þau eru orðin svo æst, þá kemur að því að mamman, sem er yfirleitt á aldrinum 35 – 40 ára, í yfirvikt, ,með frystihúsastrípur og í Russel galla öskrar á bornin og skammar þau. Hvað fær hún útúr því? Jú börnin fara að væla. Pabbinn situr við borðið að reyna að ná sambandi við unglinginn sem er að kafna úr gelgu eða öllu heldur skömm. Þetta er hin tíbýska íslenska skyndibita ferð. Þetta er e-ð sem ég ætla aldrei að gera, þetta var örsjaldan ger þegar ég var krakki og er ég mjög fegin. Síðast þegar ég fór með fjölskyldunni á KFC  var það eftir e-a útilegu og voru krakkarnir svo uppgefnir að þau sátu dofin allan tíman og borðuðu matinn sinn. Ef þú ert foreldri á aldrinum 35 -40 ára og ert að spá í að fara á skyndibita stað með fjölskylduna, vinsamlegast farðu í bílalúguna, eða gerðu þetta almennilega, farðu úr Russel gallanum og kíktu á American Style eða Ruby Tuseday, það er kannski pínu dýrara en það borgar sig..... fyrir námsmenn sem hanga á KFC og vilja frið ;)

Amen, ég er farin að sofa

-ólof, bitur menntaskólanemi

 

 

 

 




» 7 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 23:35:54 / dyrid-

´¨*?Þ=$*&#'*!_#'#

Það er margt og mikið sem hefur gerst hjá okkur undanfarið:haha:

  • Ég (Sólveig), Ólöf og Lára á leiðinni í ljós..ég bakkaði á annann bíl sem ég sá ekki:( Arnór beyglaður!
  • Ég er komin með vinnu:haha: gengur ekki að eiga ekki pening
  • Ólöf fór í klippingu í dag...alger gella;)
  • Ólöf fór með Einari og fleirum út að borða og svo á frumsýningu á Mýrina8|
  • .....hún er heppin
  • Ég er að fara heim næstu helgi:D:D flýg til Egilsstaða um hádegi og verð alla helgina. Hafnarbarin kemur sterkur inn:D
  • Þórshafnardjamm um helgina!!!!!!! og ég kemst ekki!
  • ..helvítis tussu djöfull
  • Bjarni Freyr búinn að týna símanum8| alveg ótrúlegur
  • góður verslunarleiðangur hjá okkur um daginn;)
  • Hulda og Ólöf komu í heimsókn í gær...það var stuð:D
  • Íris bauð mér á íshokkíleik um helgina...hlakka til
  • Dagur kom í bæinn seinustu helgi. Fórum á Jackass2 og út að borða..var alger snilld
  • Ólöf og Einar búin að vera saman í mánuð:) til hamingju með það elskurnar;*;*

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 21:03:43 / dyrid-

JÓLIN

Gott fólk!
Það er margt sem ég hef uppgvötað síðastliðna daga og hér í dag ætla ég að nefna eitt dæmi sem ég bjóst við að væri saga fyrir lítil börn til þess að vera góð á jólunum...

Ólöf hefur nokkrum sinnum tjáð sig um það að jólin væru ekkert skemmtileg, þar sem hún eyðir þeim bakvið kjötborðið í Fjarðarkaup. En ég bjóst ekki við því að þetta væri svona slæmt!! hún bara þolir ekki jólin...þá erum við að tala um það sama og hvað ég þoli ekki nokkra utanaðkomandi aðila sem verða ekki nefndir á nafn af þeim kringumstæðum að þeir gætu allir mögulega fundið helvístis síðuna. En já aftur að Ólöfu og jólunum. Ég og Ólöf skelltum okkur í nýja IKEA í dag...og viti menn jólaskraut út um allt!!! og hún röflaði allann tímann um hvað jólin væru ömurleg, ógeðsleg og hvað hún hataði jólin mikið. Svo þegar við erum að koma að kössunum....nei eru ekki bara skrilljón og tíu jólaskraut um allt, ég beið eftir að hún myndi verða snælduvitlaus en það slapp til!! sem betur fer. En ég var nú ekki aldeilis sloppin!! hún tjáði sig meira og meira....þá kom samasemmerki!
Sagan um Trölla sem stal jólunum hlýtur að vera byggð af Ólöfu...því engan annann en Trölla veit ég um sem þolir þetta ekki svona! Þetta er mín kenning og mun ég halda:

FYRIRLESTUR Í HÁSKÓLA ÍSLANDS KL 13:00 RÉTT Á EFTIR JÓHANNI GÍSLASYNI SEM ER MEÐ FYRIRLESTURINN = ÁTTU VIÐ RISVANDAMÁL AÐ STRÍÐA.

Mér finnst hins vegar jólin yndislegur tími. Ég fer heim í faðm fjölskyldunnar sem ég hitti sjaldan og hitti alla vini sem eru í skóla á Akureyri, Laugum og fleira. Allir hanga á barnum þegar ekki eru fjölskylduboð eða e-d álíka, allir hópast saman í Vopnafjarðarlaug sem er ávalt gaman og svo nottla að vera heima með systur minni að skreyta og baka smákökur:D ég eeeelska jólin!. Svo förum við líka alltaf annann í jólum með fallega skreytingu til Brynjars. Núna þessi hitti ég Völu mína sem ég sakna meira en allt í heiminum!=)


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 20:43:14 / dýrið

JÓLA FOKKIN HVAÐ !!!

                                

-Ólöf


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 14:13:05 / dýrið

Framtíðarstarf

Ég er komin með framtíðarstarf mitt :!:

Planið er að setja á fótinn fyrirtæki sem mun bera nafnið Velkominn. Fyrirtækið mun sjá um það að bjóða fólk velkomið inn á stofnanir og því um líkt. Einnig munum við leigja út starfsmenn til annarra fyrirtækja til að bjóða fólk Velkomið til sín, sérstakt tilboð er á starfsmönnum sem fara í heimahús og bjóða velkomið í veislur og samkomur.

Fyrsta verk okkar er að bjóða 200 rússa Velkomna til landsins, en þá hefur flugfélagið Icelandair pantað tvo starfsmenn til að standa við útgönguleiðir á flugvélum sínum, að flugi loknu og afhenda karlkyns farþegum 66° norður húfur, tvær tegundir verða í boði bæði með hvítum stöfum og gulum. Fyrir kvenkynið verða í boði rúlluburstar til að túbera hár og augnskuggar, fjólubláir og sægrænir.

Vinsælt er einnig hjá tannlæknastofum að fá einn starfsmann hjá okkur til að bjóða fólk velkomið til tannlæknis, þá munu starsmennirnir afhenda andrésblöð og blautklúta.

Nokkrar stöður ennþá lausar, vinsamlegast hafið samband ef áhugi liggur fyrir, við Ólöfu í síma 565-2811


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Pétur Kjerúlf †